31.01.2006 20:49:24 / ladlem77

Vigtun númer 16

Vigtun aflokið og í þetta skiptið voru það 1,5 kg sem ég borðaði af mér í síðustu viku býsna ánægður með það, er hættur að búast við einhverjum tölum læt þær bara koma mér á óvart. Virðist vera kominn á rétt ról eftir síðustu viku. Búinn að kveðja 22,3 kg allt í allt.

Bið að heilsa

Fimbulfambli


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 22:51:20 / ladlem77

100 gr niður

Jæja þá er vigtun aflokið og í þetta skipti sörguðust af mér 100 gr, þetta var nú með minnsta móti í þetta skiptið, en verður maður ekki að vera ánægður með allt sem fer niður:$, ætlum að skoða okkar mál, og athuga hvað við getum bætt, höfum verið að hreyfa okkur of mikið, miðað við mataræðið, vonandi verður útkoman betri í næstu viku.

Hef ákveðið að breyta aðeins um hugarfar, hugsa minna um kíló og grömm og meira um hvað þetta mataræði bætir heilsuna, og líka það að halda þetta út.

Þetta er gott í bili bið að heilsa.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 10:26:03 / ladlem77

Ömurlegasti dagur ársins.....

að mati vísindamanni í Englandi heyrði ég í útvarpinu í morgun. Þeir eru víst búnir að finna það út að mánudagur sem er næst 24. janúar er leiðinlegasti dagur ársins, ekki veit ég hvernig þeir fundu það út örugglega eftir miklar og fræðilegar rannsóknir. Annars finnst mér ég þessi dagur bara ágætur kominn í vinnu eftir langa helgi, tók mér frí á föstudaginn því ég átti inni sumarfrí það var bara ágætt, við skötuhjúin fórum í hinar ýmsu útréttingar meðal annars í sambandi við brúðkaupið.

Fór í ræktina á laugardagsmorgun í fyrsta skipti á þessu ári og var með svolitla strengi eftir á, en þýðir það ekki bara að maður hafi tekið vel á því ;) Fórum svo í langan göngutúr seinna um daginn löbbuðum til tengdó sem býr alveg hinum megin í bænum í nýjasta úthverfinu það tók tæpan einn og hálfan tíma, eftir smá hvíld hjá henni löbbuðum við svo niður í innbæ komum við á æsku heimili mínu, ætlaði nú að fá far þaðan en þar sem enginn bíll var heima urðum við að ganga heim sem tók um 40 mín, þannig að þetta var býsna góður göngutúr. Sunnudagurinn fór svo í bakstur og afslöppun, bökuðum þrjár kökur allt náttúrulega DDV vænt.

Sá auglýst í Fréttablaðinu að byrjað væri að selja DDV ís í Hagkaupum, ég skellti mér á einn líter af súkkulaðiís, fannst hann nú heldur bragðdaufur, finnst ísarnir sem við búum til sjálf betri þannig að ég býst við að halda áfram að búa þá til sjálfur, heldur en að eyða stórpening í tilbúin ís þó að það sé flott að geta leyft sér það einstaka sinnum.

Vigtun á morgun,. viet ekkert hvað verður og geri mér engar væntingar, ætla bara að láta vigtina koma mér á óvart.

Takk kærlega fyrir  öll kommentin og endilega haldið áfram að segja ykkar skoðanir

Kv Fimbulfambli

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 00:08:04 / ladlem77

Þrenna í dag hjá mér

Já það var þrenna í dag þ.e.nýr tugur, tveggja stafa tala og 20 kg markmiðinu náð :lol:

Já ég vóg,  þrátt fyrir ekki mikla bjartsýni í byrjun dags, 99,6 kg og tveggja stafa tölu á vigtinni hef ég ekki séð í nokkur ár.

Þá hef ég sett inn myndir af mér sem sýnir DDV söguna mína þær getiði séð hér til vinstri undir Myndir.

Fimbulfambli kveður í sjöunda himni jibbííííííííííííííí :P:haha::D


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 11:29:03 / ladlem77

Smá blogg lægð

Já hef verið latur við það undan farið að blogga ég viðurkenni það alveg, en nú er komið að vigtunardegi og þá rita ég ævinlega örfáar línur. Var veikur í síðustu viku frá miðvikudegi og var heima að jafna mig, djö... kvefpestin að drepa mig, en nú er ég búinn að jafna mig og kominn í vinnunna aftur.
Það er samt eitt sem ég þoli ekki, það er þegar ég sef yfir mig og það hefur verið að gerast mjög oft uppá síðkastið og nú síðast í morgun. Ég bara slekk á hringingunni og vakna ekki fyrr en það er hringt úr vinnunni. Verð að fara að gera eitthvað í málinu, koma mér upp annarri vekjara klukku til vara.


Hef ákveðið að setja inn myndir af mér, til að leyfa ykkur að skoða, vinn í því næstu daga.

Hún mamma mín og litla systir mín ákváðu að prófa að borða eftir fyrirmælum DDV í síðustu viku og mættu í vigun og fyrsta fund í síðustu viku, ég bíð spenntur eftir því hvernig þeim hefur gengið, við skötuhjúin höfum verið þeim innan handar svona meðan þær eru að komast inn í þetta.

Já svo er vigtun í dag og ég er ekkert rosa bjartsýnn, hef ekki alveg að fara eftir prógramminu undan farið, hef ekki komist uppúr farinu frá því um jólin, en maður verður bara að taka þeirri tölu sem upp kemur.

Læt í mér heyra þegar nýjar tölur eru komnar inn
Kv Fimbulfambli

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 18:42:45 / ladlem77

20 kílóin nálgast óðfluga

Og 2 stafa tala, fór í vigtun í dag og fyrsta skipti á þessu ári og ég kvaddi 1,9 kg, það vantar bara 700 gr í 20 kg léttinginn og þá fæ ég að sjá tveggja stafa tölu í fyrsta skiptið í langan tíma. 

kveðja Fimbulfambli


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 22:44:16 / ladlem77

Gleðilegt árið

Þá er árið 2006 runnið upp, mikið et tíminn fljótur að líða úffff. Þar sem ég verð að vinna extra mikið á morgun lítur út fyrir að ég komist ekki í fyrstu vigtun ársins :(  En það kemur önnur vigtun bara í næstu viku og þá verður bara enn stærri tala, vonandi. Jæja bið að heilsa í bili :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 17:23:51 / ladlem77

Jólin Jólin allstaðar

Jæja þá er bara tæpur sólarhringur í að jólin ganga í garð mig langar bara að óska ykkur Gleðilegra jóla og vona ég svo sannarlega að þið hafið það gott


Jólakveðjur Fimbulfambli

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 05:51:48 / ladlem77

Klukkan 4:30....

...var ég mættur í vinnu. Það er alltaf annríki í vinnunni fyrir jól þá verður maður að vinna aðeins meira en venjulega. Reykjavíkurferðin gekk vel, þar voru gerð síðustu jólainnkaupin farið í bíó og út að borða. Fórum tvisvar út að borða í annað skiptið á Salatbarinn í Fákafeni eða Faxafeni er ekki alveg viss á þessum götunöfnum, en maturinn var frábær :) ég fékk mér mikið af grænmeti og svo var þarna kjúklingapasta sem ég gæddi mér á. Var svo allt of saddur eftir allt saman. Í hitt skiptið fórum við á American style þar fékk ég mér kjúklingasalat sem var mjög ljúfengt. Suðurferðin var kannski ekki alveg 100 % DDV en ég drakk allt vatnið sem ég átti drekka og reyndi eftir besta megni að klára grænmetisskammtin. En það var þó ekki bragðaður neinn sykur eða nammi og þess háttar. Bara býsna stoltur af því. Síðan á að taka núna góða viku fram að jólum og á milli jóla og nýárs. Allt til að fá góðar tölur þann þriðja janúar. Jæja nú er orðið svo mikið að gera í vinnunni að ég verð að hætta...
Jólakveðjur Fimbulfambli

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 20:54:13 / ladlem77

Úff hvað maður er....

....saddur eftir jólahlaðborðið sem var algjör snilld, allskonar réttir og ég smakkaði á öllu :) takk fyrir mig, bananakakan gerði lukku meðal gestanna, alveg í skýunum.
Léttingur vikunar 1,3 kg hæstánægður með það, 17,4 kvödd og bara 2,6 kg í 20 kg sem næst vonandi í næstu vigtun enda 3 vikur í það. Maður verður bara að vera duglegur að borða yfir hátíðarnar svo maður léttist mikið í fyrstu vigtun ársins :lol:
Kv Fimbullfambli
P.S. Þið sem kíkið við á síðunni minni mættuð gjarnan kvitta í gestabókina mína:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 07:28:17 / ladlem77

Jólahlaðborð

Já er að fara á jólahlaðborð í dag, það verður haldið á eftir vigtuninni hjá okkur í DDV. Við bökuðum köku í gær, það er reyndar bananamuffins samkvæmt uppskriftini (bls. 92 eða 94 bók 5), en við margfölduðum hana þannig að úr varð bananakaka og svo gerðum við krem úr sýrðumrjóma og kakó og sætuefni, smökkuðum pínu og þetta var ekkert smá gott :)
Þetta virkar þannig að það eiga allir að koma með eitthvað á hlaðborðið þannig að úr verður dýrindiskræsinga hlaðborð allt innan DDV. Því nú er DDV að fara í jólafrí en það verður byrjað að vigta strax 3. janúar, þá verða vonandi stórar tölur sem fá að fjúka.
Ég er bara hóflega bjartsýnn um létting í dag, ætla ekki að gera mér neinar stórar vonir og vera bara sáttur við allt sem fer.
Gangi öllum vel í vigtun, kveðja Fimbulfambli

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 18:34:45 / ladlem77

Vigtunardgur

Já það rann upp einn enn þriðjudagurinn og það þýðir að það sé kominn vigtunardagur. Sem sagt fór í vigtun í dag og léttingur vikunar var 1,1 kg, get ekki annað en verið sáttur með það miðað við að hafa léttst yfir tvö kíló síðustu tvær vikurnar og hef ég þá kvatt 16,1 kg í allt og þar af 5,7 kg síðustu þrjár vikurnar.

Í dag var svo verið að verðlauna einn meðlim DDV, Guðmundur Helgason hann er búinn að léttast um 50 kg síðan um miðjan janúar á þessu ári frábær árangur hjá honum, hann er okkur hinum mikil hvatning.

Hafið það gott þangað til næst og takk fyrir allann stuðningin


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 07:41:24 / ladlem77

Frábær byrjun á degi

Ég var svo innilega glaður þegar ég ætlaði að fara í vinnunna í gær.....eða þannig, þegar ég kom út og ætlaði að fara uppí bíl tók ég eftir því að það var púterað á einu dekkinu alveg frábært, sem betur fer var ég tímanlega í því þannig að það þýddi ekkert annað að en drífa sig í að skipta, sem tók um hálftíma í frosti og myrki en Silley kærastan mín hjálpaði mér og það flýtti mikið fyrir mér. Þannig að ég mætti ekki of seint í vinnuna :)
 Eins og þið sjáið breytti ég um útlit á síðunni, enda færast jólin alltaf nær og maður er að komast í jólaskap. Birgðum okkur upp í Bónus í gær af dýrindis steikum sem ég ætla að hafa um helgina, svínasteik og lambasteik, og kemur það í staðinn fyrir jólahlaðborð sem er haldið í vinnunni og við ákváðum að fara ekki á,  vildum ekki hætta á að árangurinn sem við höfum náð tapaðist.
Takk fyrir stuðninginn allir sem kommenta hjá mér og líta við á síðunni, það er mér mikils virði :haha:
Jæja ég verð að halda áfram að vinna ég segi bara góða helgi allir saman

» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 20:16:57 / ladlem77

Já ég segi bara eins og maðurinn í auglýsingunni....

.... Nú kom ég sjálfum mér á óvart haldiði ekki að það hafi farið 2,1 kg hjá mér í dag og með því náði ég jólatakmarkinu að komast niður í 105 kg fyrir jól og er þá búinn að léttast um 15 kg frá því að ég byrjaði. Og ég hef kvatt 4,6 kíló á síðustu tveim vikum pæliði í'ðí maður. Ég er varla búinn að jafna mig á þessum tíðindum. :lol:

Fimbulfambli kveður léttur í lundu og á líkama


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 07:32:17 / ladlem77

Helgin kvödd

Fyrirgefið hvað ég er lélegur að blogga, finn mér ekki tíma til þess einhvern veginn. Afmælisdagurinn minn á síðasta fimmtudag var ljúfur, elduðum kjúklingabringur, konan bakaði brauð og smákökur a´la DDV, svokallaðar hunangskökur alveg þrælfínar, svindlaði pínu fékk mér aðeins meira brauð en ég mátti með pínu rækjusalati og svo bragðaði ég auðvitað á smákökunum, en maður á bara afmæli einu sinni á ári, þetta var samt ekki alvarlegt svindl, er það nokkuð?
Fékk óvænt símtal á laugardagskvöldið, mínir gömlu skólafélagar úr Gagganum voru að hittast, fá sér öl og rifja upp gamla tíma. Vildu fá sem flesta sem búa á Akureyri ennþá ég dreif mig auðvitað en fékk mér engan öl því það er í banni, átti reyndar ekkert erfitt með að neita mér um það. Var þar í nokkra tíma og dreif mig svo heim í bólið. Svo er vigtun á morgun ég krossa fingur í von um góðan árangur hjá okkur öllum, gangi ykkur vel í vigtun á morgun
Kv. Fimbulfambli

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3